1. próftemberErla Hlín Henrysdóttir
Í gær voru afar vel heppnaðir tónleikar Háskólakórsins og ég vil nota tækifærið til að þakka elskunum mínum sem keyptu af mér miða og komu :*það er alltaf jafn gaman að sjá kunnugleg andlit í sal þegar maður er búinn að leggja svona hluti á sig!
Nú er bara allt í einu komin prófatíð og ef að systir mín kær væri ekki að fara að gifta sig eftir smááá þá kæmist ekkert annað að.
Þess vegna fannst mér frekar leiðinlegt að vakna í morgun og vera enn á ný sannfærð um nauðsyn þess að mæta meira í ræktina
ég söng á 1 tónleikum og ég er með harðsperrur í upphandleggjum eftir að halda möppu uppi í 2 tíma, MÖPPU!
það er ekki eins og ég hafi verið með flygilinn í fanginu allan tímann...þó að það sé tilfinningin núna...
TilkynningErla Hlín Henrysdóttir
Ef þú ert á Þjóðarbókhlöðunni og VARST að fatta að þú ert ekki í bleiku blúndunærbuxunum sem þú varst í þegar þú mættir þá ekki örvænta, ég var að finna þær!Ef þig langar að vita hvar þær eru og segja mér HVERNIG þær týndust þá er ég ekkert nema eyrun og fer í pásu aftur um kvöldmatarleytið....
ég elska Hlöðuna, einmitt þegar þú heldur að hún geti ekki mögulega orðið meira borgin 'it trows you a curveball!'
Ég fór ein í kaffi áðanErla Hlín Henrysdóttir
og þar sem ég sat (á þjóðabókhlöðunni) komu tveir útlendingar á næsta borð.Þær voru í útivistarúlpum og önnur hafði fjárfest í ísenskri lopapeysu (var þó ennþá í pjúra slavneskum gallabuxum...)
Þær voru 2 af þeim hópi fólks sem fer ekkert á milli mála að eru túristar, fasið, klæðaburðurinn og hárið var allt eins og þær hefðu sko EKKI gert ráð fyrir þessu helv**** roki í skoðunarferð um Reykjavík (því að ef að þær hafa komið fyrir um það bil viku má gera ráð fyrir að þær hafi upplifað ALLAR gerðir veðurs sem landið hefur upp á að bjóða og ég var frekar glöð í hjartanu að bakpokarnir þeirra voru af dýrari gerðinni, með mittisól og allt)
Hvernig þær vöppuðu inn á Þjóðabókhlöðuna af öllum stöðum til að fá sér hádegismat skildi ég ekki (mér datt helst í hug að það væri vegna þess að inngangurinn virðist svo rosalega pro og veitingastaðalegur) og ég fann svoooooo til með þeim þegar ég sá þær ráðast á súpuna sem þær keyptu á næstum 500 krónur (í litlum skálum... þær björguðu þessu þó með því að taka sinn helminginn hvor af brauðkörfunni sem fylgdi!)
Mér varð hugsað til túristagreyanna sem af einhverjum ástæðum ramba upp í flugvél með þetta land sem áfangastað hafandi enga hugmynd um það hvað bíður þeirra og þeir koma svo hingað þar sem verðbólgan étur börnin þín.
Ég var orðin svo upprifin yfir mínum eigin hugarburði, rosalega fixeruð á rómantík og ferðalög að ég var löngu hætt að lesa stúdentablaðið á borðinu hjá mér og var alveg að fara að gefa þeim Evrurnar sem döguðu uppi í veskinu mínu einhvern tíma fyrir jól þegar önnur þeirra sagði:
,,þessar húsaleigubætur stúdenta eru algjör markleysa!"
Ég held, ég HELD að ég ætti bara að einbeyta mér að lestrinum og láta einhverjum öðrum það eftir að vera miskunnsami samverji Hlöðverja...
úti að akaErla Hlín Henrysdóttir
Þar sem ég ferðast ansi mikið á bíl móður minnar þessa dagana hef ég rekist á ákveðna staðreynd.Ég elska fólk sem leggur skakkt, eða í 1,4 stæði (eða bæði) t.d. við Kringluna, World Class eða Þjóðabókhlöðuna og gera það þar með að verkum að öll við hin sem þurfum að sækja þessa staði leggjum 10.4 kílómetra frá áfangastað eftir að rúnta um öll stæðin í leit...
þetta var sérstaklega ánægjulegt í dag í moldrokinu.
óh, það virðist hafa læðst inn innsláttarvilla, ég meina ekki elska, ég meina ég HATA.....það er svo þunn línan þið vitið!
Raunasaga ungrar stúlku...Erla Hlín Henrysdóttir
Þegar ég var yngismær á fyrsta ári í MR hafði ég gjarnan um það stór orð að mér þætti fátt heimskulegra en að koma sér upp fíkn sem maður þyrfti að hafa fyrir að öðlast og ef ég lenti á súkkulaðimola með minsta votti af kaffibragði ygldi ég mig fyrir málstaðinn (þar sem það þyrfti að saurga súkkulaði ansi mikið til að ég alvöru-ygldi). Eiturlyfjaneytendur fara alltaf aftur í það af því að frá fyrsta skammti upplifa þeir e-ð "stórkostlegt" það er þannig séð alveg skiljanlegt. það sama er ekki hægt að segja um kaffi. Mér fannst það viðbjóður frá fyrstu kynnum. En svoleiðis er það nú þegar örlögin og yfirlýsingarnar bíta í afturendann á manni að með kaffihúsamenningunni í miðbænum (sem ríkir kannski aðallega meðal miðbæjarrotta og menntaskólanema) var manni ekki lengur stætt á því að panta vatnsglas (og ég fæ illt í magann af kakó....) svo að Swiss Mocca varð raunin (sem er líka kakó.....gáfulegt?) svo var það latte með sýrópi (mæli með heslihnetu-), svo með engu sýrópi, sojalatte o.s.frv. tröppugangurinn vatt upp á sig og nú er svo komið að ég sækist í kaffi alls staðar þar sem ég get mögulega fengið það og ég meina ALLS STAÐAR kaffisúkkulaði er ÆÐI þó að það vinni ekki mjólkursúkkulaði MEÐ kaffi ogKaffiís er í uppáhaldi, ég hef meiraðsegja bægslast við að búa hann til heima...
Ég er meiraðsegja farin að grípa mig í því að anda djúpt að mér þegar ég geng við kaffirekkann í matvörubúðum...
Ég er ekki orðin svo pro að ég drekki það svart eða geti kyngt rasssviðaramma kaffinu í Öskju (sem Haffi reyndar, elskar mest) svo að ég sé að ég á ennþá eftir nokkur þrep, ég er að hugsa um að stoppa bara hér og njóta útsýnisins með kaffibolla í hönd því að ekki vil ég verða ein að þeim sem VERÐUR að fá fix eða hún fær höfuðverk, seisei nei!
velkomin Anna...... it sucks, you're gonna love it!
Erla komin í frí, Erla tekur við....Erla Hlín Henrysdóttir
Þá eru prófin að byrja...og öfugt við almannaálit, og það sem fólk heldur um mig þá finnst mér það ógeðslega gaman.
Mér finnst gaman að læra (ég er ekki einu sinni að plata) ég meina, mér finnst margt svo miklu, miklu skemmtilegra en það breytir því ekki að próf finnast mér skemmtileg.
Ég er ekki að ruglast, það er ekki tilfinningin EFTIR próf eða lestur, það er bara nákvæmlega þau. Það spillir ekkert hvað fólk verður eins og fokheld hús í prófum, það fer allt aukadót burt, ef fólk er að gera sér upp sjálfsöryggi sést það í prófum, ef fólk er ekki náttúrulega hot þá sést það í prófum, því að annað hvort mála stelpur sig allt of mikið í einhverju panikki og overdo-a þetta allt saman (af því að prófalestur á ekkert að vera neitt fabulous) eða það hendir öllu burt og þá er spurningin, verðurðu eins og the Fresh Prince of Bel Air og púllar þetta fáránlega vel...eða verðurðu eins og róni? Það eru muuuun fleiri í seinni hópnum
...eins og ég sagði í síðustu prófatörn, þegar fólkið á Hlöðunni er farið að líta út eins og það eigi heima í hlöðu þá fæ ég fiðring í magann...ekki ólíkann jólafiðringnum það er e-ð svo yndislegt við eymdina og vonleysið í loftinu!
Ég hef ákveðið að standa mig... góð ákvörðun?
ég er að byrja að lesa og þó að einhver bekkjarsystkin mín hafi byrjað að lesa, jah, í janúar þá neita ég að panikka, núna er það bara að vakna til lífsins og taka á því.
Eftir niðurlæginguna sem var munnlega lífeðlisfræðiskýrslan þar sem ég held bara án gríns að ég hefði ekki getað staðið mig ver án þess að ráðast líkamlega á kennarann eða fara að rífa úr mér hárið og gráta í miðri setningu (sem, trúið mér, var ekkert svo langt í) þá ætla ég að dusta rykið af elsku metnaðinum sem einkenndi mig hérna einu sinni og ég er eiginlega búin að sakna...
Ef þú átt afmæli í millitíðinni þá óska ég þér hér með til hamingju ;) það er hugsanlegt að ég líti við en það verða engin heillar-nætur-djömm héðan í frá um hverja helgi...
Þetta tímabil var frábært, en þessi hér er komin í frí:
: