Líf í myndumErla Hlín Henrysdóttir

Ég var að passa Ingu og Önnu í kvöld, og hvað þýðir það?
=lestur á 6 bókum, ein umferð af 'Sofðu unga ástin mín' og 14 umferðir af 'Dvel ég í draumahöll'
 en líka, MOOOOVIE NIGHT!

ég var að sjá Dirty Dancing í fyrsta skipti og ég vildi bara koma því á framfæri, ef einhver vill kenna mér að dansa í sumar þá er það bara ay-okay!

þetta er kynþokkafyllsta fólk í heimi....

og næst á dagskrá er ekkert minni hittari en aðeins minni klassík: Bend it Like Beckham!
bend it like beckham
Indversk fótboltastjarna varð undra ER-læknir og bresk ekki-lesbía varð Elizabeth Bennet og súúúúúperstjarna....

af hverju er mitt líf ekki svona magical?

ég ætla að byrja á því að láta alla kalla mig Baby....mkay?

DjammErla Hlín Henrysdóttir

Þá eru lyfjafræðingarnir búnir að starta seinni vertíð þessa skólaárs, þeir eru búnir að mæta í efnagreiningu, almennaefnafræði II, örverufræði og lífeðlisfræði, OG búnir að halda fyrsta partýið.

Fyrsta lybbaparty var haldið í ófinnanlegu húsi í Mosfellsbænum á föstudaginn og það var óóógeðslega gaman. Maður uppgötvaði leynda gítarhæfileika í guitar-hero og tók SingStar í óæðri endann. Fyrir nú utan það að vera núna búin að sjá allar götur Mosfellsbæjar, sem er alveg afrek útaf fyrir sig...

Eftir þetta fórum við niður í bæ, og þó að yours truly hafi gleymt sjálfu peningaveskinu (með öllum pening og skilríkjum og öllu) í Mosó þá var þetta bara ekkert mál. 
Kom í ljós að í bænum eru skilríki bara óþarfi, enda lenti ég barasta aldrei í vandræðum!

Stelpurnar gáfust upp snemma svo að ég hélt bara áfram með Valla og Dóra.... það var stuuuuð, og ég held að það geti verið að Dóri sé örlátasti maður í heimi, við könnum það betur ;)

Þegar heim var komið tóku við 2 sniðugar uppgötvanir, peningaveskið mitt var þar á borðinu, þannig að ég hef bara ekki munað eftir því í upphafi, takk fyrir eftirreksturinn Ari, ég vissi að ég myndi gleyma einhverju ;)
Ég var samt með skilríki innanklæða....bara ekki mín, svo að núna sit ég uppi með e-ð sem ég hef fundið á götunni, skilríki og kreditkort, FRÁBÆRT

Og ég sem hélt ég myndi rúnta í Mosó í dag til að sækja mín skilríki er að fara þangað núna að skila þessum til föðurhúsanna...

Ég kann að búa mér til vinnu :)

Eigið góða viku....ég finn á mér að mín verður frábær!

JESSErla Hlín Henrysdóttir

Gatatungan er gróin....þetta veit ég af því að ég borðaði appelsínu í dag með mun minni sársauka en síðast!

ég var að enda við að borða frosna jógúrt með gaffli, ég nálgaðist það verkfæri af aukinni virðingu í þetta skiptið og mundi, mér til mikillar kátínu að ég byrjaði síðustu skólaönn líka á því að stinga gaffli í einhvern part af andlitinu á mér.

Í það skipti var ég einmitt að borða nákvæmlega eins jógúrt með nákvæmlega eins gaffli. Í þetta skipti var ég bara aðeins minna að labba (var reyndar bara að liggja) og aðeins minna að múltítaska (var ekki að gera jack-shit, eins og vinir mínir kanarnir myndu orða það...)

Þá er það opinbert Erla Hlín Henrysdóttir ætti aðeins að nota eggvopn í mjög vernduðu umhverfi.....

eða nota bara skeið

og smekk

vá hvað ég myndi sóma mér vel við matarborð á heilabilunardeild!


Góðan daginn, ég heiti ElínErla Hlín Henrysdóttir



ég er svooooo oft kölluð því ágæta nafni...

í kvöld þurfti hins vegar kona að skrifa nafnið mitt niður og segir, hvað heitirðu?

'Erla Hlín Henrysdóttir'

ég fór yfir til hennar til að tékka hvort að Henry hefði verið skrifað rétt og við mér blasti "nafnið mitt"

'sagðirðu ekki annars Hlíf? ég var ekki alveg viss...'

'neeeei, ég heiti reyndar Hlín, og ég skrifa líka oftast Erla með L-i...ekki N-i'


ohh well, ég held ég prísi mig bara sæla með Elín héðanífrá, ég er alla vega farin að þekkja það!

Kveðjur, 
Erna Hlíf....hver sem það nú er!

MislukkErla Hlín Henrysdóttir

Þessi helgi varð eiginlega gjörsamlega mislukkuð.

Mamma og pabbi fóru í Borgarfjörð og ég kom mér vel fyrir í stofunni, eyddi fyrri parti laugardagsins í að strauja og svona og ætaði svo sannarlega að hafa það kósí seinni partinn...

Þangað til Sigrún hringdi... 'Erla ætlarðu ekki að fara að koma í vinnuna? þú ert á kvöldvakt!' , ég vil þakka yfirmanneskjunni fyrir að splæsa aukavakt á án þess að spyrja kóng eða prest! (ég er kóngur, Sigrún prestur)

Þegar ég kom svo heim um miðnætti kom ég að tómum kofanum, bókstaflega. Mér finnst ekkert mál að vera ein heima... mér finnst bara ógeðslega óþægilegt að fara að sofa beint í húsi sem enginn er búinn að vera í (sérstaklega eftir upprifjun á öllum hugsanlegum hryllingsmyndum sögunnar í afmælinu hennar Ingu á föstudaginn....krydduðum með raunverulegum ógeðissögum...) Svo að ég sofnaði klukkan hálf 4.

Þegar ég mætti á morgunvakt í morgun fór ekkert á milli mála að mín var algerlega ósofin, ég hafði greinilega skilið samhæfingu útlima eftir heima í rúmi, því að auk þess að steinsofna á milli kerlinganna minna þegar ég settist aðeins niður, tókst mér að:

-fá 1 stk eldvarnarhurð aftan á hælinn
-fá húninn á sömu eldvarnarhurð í bakið
-reka höfuðið í loftið í þvottahúsinu (er undir súð)
-teygja mig í skurðarbretti svona í höfuðhæð, og fá afganginn af þeim ofna á ristina...hún er bólgin og flott núna
-og ná toppnum þegar ég stakk gaffli á bólakaf í tunguna á mér, ég þurfti að kippa honum úr!

Ég bið ykkur vel að lifa, ætla sjálf bara að reyna að lifa afgang dagsins af...með flugeldum og tilheyrandi...jah og kannski leggja mig, ég held að það sé góð hugmynd....

þar til síðar

Erla, hin miög svo ólaghenta í dag!

Jólin/skólinnErla Hlín Henrysdóttir

Nú eru jólin að verða búin og skólinn byrjar víst á mánudaginn.

Ég er umkringd fólki sem talar ekki um annað en að það verði gott að komast aftur í skólann og "hafa e-ð að gera á daginn" 
ég er einmitt að ná upp svefni núna eftir vinnutörn jólanna....það breytir því ekki að ég er spennt að byrja í skólanum aftur.... spurning um að vera jákvæður held ég bara!

Jólin gengu sinn vanagang. 
Gott fólk, góður matur, góðar gjafir og skemmtunum (nema fjölskyldu-) var haldið í algjöru lágmarki. 

Ég fór í 3 partý, öll á bíl
og....
that's it

ég var reyndar að koma úr bíó núna. skellti mér á I am Legend, enda orðin verulega bíóþyrst.

Við fórum í Háskólabíó (aðeins að ná upp stemmaranum fyrir mánudaginn) og við Ari (bekkjarbróðir og vinur) náðum alla vega 10 í einkunn fyrir að mæta í hettupeysum í næstum því sama fjólubláa litnum...
Anton (vinur hans) hélt kúlinu
hann hélt meiraðsegja svo mikið kúlinu að í spjalli við miðasölustelpuna um föt frá henni sem voru heima hjá honum kom fólk innar úr húsinu að þagga niður í okkur því að þau heyrðu ekki í ræðumanni Vínartónleika Sinfóníusveitarinnar....

Gangan framhjá gestunum að salnum á bak við þar til gert reipi var skemmtileg og ekki vitund skömmustuleg...


Partýblaðran rak mig svo aftur inn í hóp prúðbúinna gesta í hléinu og allt of mikið notaðir mjög háværir skór urðu til þess að ALLIR tóku eftir mér í minni hettupeysu og gallabuxum....talandi um walk of shame

Myndin var hins vegar ágæt, ég er draumur hvers leikstjóra því að ég kipptist við í hvert einasta skipti sem ég átti augljóslega að gera það... Ari hins vegar sýndi á sér nýja hlið (vélmennis) og kippti sér ekki einu sinni upp við að ég var eins og flogaveikissjúklingur við hliðina á honum (gott að vita).

Endilega skellið ykkur í bíó ef þið viljið sjá háklassa ber-að-ofan-atriði með Will Smith!
(ég þori ekki að mæla með þessari mynd út af öðru ;)

Túrílú
Erla Ljónshjarta

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Erla Hlín Henrysdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Um mig: "born with an extra happy-chip"

Auglýsing

Leit

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...