það er af sem áður varErla Hlín Henrysdóttir

Ég er búin að vera á fullu í skólanum þessa dagana.
Allt að smella saman með öll þessi verkefni sem ég tók að mér (?) svona rétt undir lokin...ég er bara ekki frá því að gamla-Erlan hafi látið á sér kræla í öllum hasarnum, ég var svakalega skipulögð og dugleg, það fór bara eiginlega um mann smá nostalgíuhrollur

ekki samt jafn mikill nostalgíuhrollur og þegar ég var að velja barnamynd af mér fyrir Faunu :)litlaerla
jább, góðir hálsar, einu sinni var ég krútt!

núna er ég bara:

dimmission

dimmission, Ó JÁ dimmission!

Erla perri out ;)

kjánaprikErla Hlín Henrysdóttir

ég var að "finna" frábæra comic síðu:

why are you walking funny

(why are you walking funny)
(well my instinct is to step only on black tiles, but they are too far apart so I'm letting myself walk on the tiles directly in line with the black ones, but that means that when we walk diagonally I have to step in a pattern where...)
(I'm not walking funny.)


...teiknarinn hefur semsagt séð mig í Kringlunni einhvern tímann ;)

Gleðilegt sumar!

ef þú mættir velja...Erla Hlín Henrysdóttir

Það er ekkert smá mikið af keppnum í boði fyrir fólk á mínum aldri.
Það eru í fyrsta lagi alls konar keppnir á vegum skólanna og svo er gósentíð sjónvarpssöngvakeppna, og svo eru það auðvitað alltaf fegurðarsamkeppnirnar...

Ég var bara að velta fyrir mér í sambandi við þessar keppnir hvað verðlaunin eru e-ð misjöfn. Ég fór að spá í þetta í gær þegar ég horfði á Söngvakeppni framhaldsskólanna. Það var ekkert smá mikið af góðum söngvurum og ég var til dæmis ánægð með MH og strákinn frá Vestmannaeyjum sem tók Garðar Cortes fílinginn á þetta, mikið hrikalega var hann e-ð sætur, ég fílaði líka í botn taktana í VMA-flytjandanum sem vann svo...

Mér fannst samt pínu skandall hvernig raðaðist í 3 efstu sætin... Ég meina ég hélt að maður yrði að syngja alveg feilnótulaust í svona mikilli samkeppni, en greinilega ekki, fer alveg eftir dómnefndum (á ekki við um sigurvegarann samt ;)

Þannig að, pointið sem mig langaði að koma með;
af keppnum (í mínum aldursflokki) sem hafa nýlega staðið yfir gildir þetta:

Þú færð:
-100.000 krónur ef að dómnefnd í söngvakeppni "fílaði þig" af einhverjum ástæðum, þú þarft ekkert endilega að vera bestur (sem er algjörlega huglægt) bara kannski svolítið kúl...
-50.000 krónur (og reyndar ferð til Halifax) ef þú undirbýrð þig og æfir þrotlaust fyrir "gáfumannakeppni"... helst í nokkur ár
-verðlaun að andvirði mörg hundruð þúsund króna, ef þú fæddist falleg :)

....ég er alls ekki að meina að vinningshafar fegurðasamkeppna eigi ekki skilið að fá sín verðlaun (þú ert frábær Fanney mín) og auðvitað hafa þær unnið í sinni fegurð, og æfa og æfa fyrir keppnina..ég var bara að spá í misræmið... æjh ég veit ekki... í guðanna bænum verið ósammála mér ;)

uppfært:
svona til að vera alveg sanngjarn þá teygir fegurðartitillinn sig lengst... þú þarft að vera gorgeous í ár og sinna alls konar skyldustörfum sem þú þarft ekkert að vera að stressa þig yfir í hinum keppnunum...

piff, ekkert mál fyrir erlu stálErla Hlín Henrysdóttir

Jæja lömbin mín
nú tekur við tími stúdentsprófa, ég er eiginlega farin að hlakka til bara.
Búin með eitt (sem var í páskafríinu...ekki plat) og annað eftir tvo daga. Þá eru nú bara 10 eftir :)
Svo er það bara að fá ljósmyndara, plana veislu og FINNA FÖT
Ég er svo fegin að allt sem er búið að vera í gangi undanfarið er að verða búið.
Ég fæ fiðluballsmyndirnar í dag, svo að ekki verður hægt að kenna mér um ef að Faunan klúðrast :)
Gen er að lita búningana okkar as we speak, svo að við þurfum ekki að vera nakin á dimmisson (tíhí)
Þá á ég bara eftir að afhenda öllum í 6.bekk sem keyptu sér myndir af ballinu og rukka þá og fá pening fyrir búningum hjá mínum bekk.....

SJITT.... æi þetta líf verður ekki alveg eins auðvelt og ég hélt næstu dagana...

framtíðarplönErla Hlín Henrysdóttir

Ég fór með mömmu og pabba upp í sveit í gær.
Í staðin fyrir að lesa knúsaði ég í einn dag óendanlega mörg loðin dýr...

Ég lenti eiginlega í hugsanaklemmu á meðan ég sat þarna, með 9 kanínuunga í fanginu, kettlingafulla læðu að stara á mig og tvo hunda sem kúrðu upp að sitthvorri hlið... einhvern veginn hef ég alltaf ætlað mér að búa í höfuðborginni, og mér  hefur til dæmis aldrei þótt ég vera nokkur einasti Borgnesingur (flutti burt 5 ára) en ég veit bara ekki hvernig ég myndi þrífast í steingeldu umhverfi "stór"borgar, ég held að, eins og systir mín, Ásta, eigi ég eftir að enda einhvers staðar úti á landi, ég er ekkert endilega að tala um að fara eins langt og ég get (eins og Ásta)... kannski að Borgarnes fari bara að líta betur og betur út...því að þegar ég segi "úti á landi" þá meina ég, ekki alveg í 101...

-Er hægt að búa í hreinu lofti, í sætri íbúð/húsi, vera með dýr, geta samt keyrt í bæinn á innan við klukkutíma? Er hægt að vera í friði fyrir öllu en samt nálægt kaffihúsarúnti á kvöldin? Er ekki ótrúlega kaldhæðnislegt að á eftir hundum eru kýr í uppáhaldi hjá mér (ég veit, ekki hlæja mikið) en mig langar samt í þetta á gólfið hjá mér? Ég held að þó að mig langi til að flytja út (þó að forledrar mínir séu yndislegir) þá eigi ég langt í land... ég þarf e-ð að taka til í þessum væntingum hjá mér fyrst... en fyrst koma stúdentsprófin... ég er farin að lesa ;)

túrílú
Erla óráðna :)

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Erla Hlín Henrysdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Um mig: "born with an extra happy-chip"

Auglýsing

Leit

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...