jólajólaErla Hlín Henrysdóttir
ókei, ég er búin að vera að dúlla mér við að skoða myndir af jólaballi MR (svona þar sem ég komst ekki á það...isssss) og ein af uppáhaldsmyndunum mínum er án efa þessi:
nú gætuð þið spurt ykkur af hverju mynd af Vöku er í svona miklu uppáhaldi, nú það er einfaldlega vegna þess að ég hef núna loksins komist að því hvaðan meirihluti þessara fimmtu bekkinga er kominn, jú, frá annarri plánetu, lítið bara á exhibit A, með hadlegg sem kemur út úr bakinu og getur séð um hönd-á-mjöðm-lúkkið þó að þú sért með tvær uppteknar hendur..... hentugt, ég veit....
Annars eru þetta búin að vera fín jól, kristilega séð mjög hefðbundin, gjafalega séð alveg fantafín ;)
upp úr standa þó: (má gera svoleiðis?)
-Safndiskur með Sálinni frá Röggu (af einhverjum orsökum hef ég aldrei á disk með þeim.....???)
-WASGIJ púls frá Addyfí sem ég er búin að vera að klóra mér í hausnum yfir í allan dag (engin fyrirmynd sko og 1000 púsl! LOVE IT!)
-Eragon bók frá Ástu minni, hún gaf mér reyndar bók númer 2 (?) sem mér fannst mjög fyndið því að ég á ekki númer 1... nú er það bara að skella sér í Pennann og græja það svo ég geti lesið Ástubók ;)
- "no prob" -morðið í U1 frá Sigrúnu (meðal annars) sem er stuttmynd úr glæpasöguáfanganum hennar....þar sem hin ódauðlegu (og ógeðslega fyndnu) orð hennar féllu ;)
og síðast en ALLS EKKI síst
-kokteilahristara frá Addý og Gumma og staupamæli (ég er alveg viss um að hún hefur spurt mömmu að því hvað hún ætti að gefa mér... allavega af svipnum á mömmu að dæma þegar ég opnaði pakkann! ;)
það fór heldur ekki fram hjá neinum að Addý sá um að skrifa á merkispjöldin en ekki Gummi því að á mínu stóð t.d.
Til: Erils
Frá: fallega fólkinu í Álfatúni 27
.....og Gumma
Snilld....
Gleðileg jól, og megið þið öll verða spikfeit um jólin!
Erla :*
Fínn dagur, fimmtudagur!Erla Hlín Henrysdóttir
Ég er e-ð svo asskoti ánægð með daginn, það er svo ofboðslega margt sem kætir mig í dag, þó að ég sé í vinnunni (kannski afþví að ég er í vinnunni, spurning) og á eftir að kaupa allar jólagjafir nema til Nesóbúa og er að fara að kaupa stúdentsgjöf og fara í stúdentsveislu og... og...Meðal þess sem kætir mig er:
-Það er fimmtudagur, sem er einmitt orðið sem ég sagði alltaf óvart í staðinn fyrir "jóladagur" á kóræfingum í vikunni sem leið, Ingunni til mikillar hamingju og fliss...
-dagsetningin í dag er 21/12 sem er einmitt speglun (freeeak!) en hún er í miklu uppáhaldi hjá litla talnanördinu (í uppáhaldi eru einnig 11/11 og 20/02 svo dæmi séu tekin ;).... ég er alltaf sú eina sem rek upp fagnaðaróp þegar klukkan er 23:32 og svona.... ég skil EKKERT af hverju...
-Deildarlæknirinn á deildinni minni heitir Jesper og einn sjúkraliðinn kallaði hann óvart Kasper, sem verður til þess að alltaf þegar ég sé hann núna ómar í höfðinu á mér "Kasper og Jesper og Jónatan..lallala" en ég er einmitt búin að vera að söngla það í allan dag inni á vakt, einu sinni óvart þegar hann gekk inn...vandræðalegt...
já, ég er bara hamingjusöm með daginn, og ég er alveg handviss um það að hann á bara eftir að batna!
prófamyglaErla Hlín Henrysdóttir
Ég áttaði mig ekki almennilega á því akkúrat hversu myglaður maður verður í prófum fyrr en ég staulaðist fram í eldhús áðan, þar voru 3 vinkonur mömmu í kaffi hjá henni (spes að kalla það kaffi þegar ekkert er drukkið nema súkkulaði- í tilefni jólanna)Ein þeirra spyr mig: "ertu í prófum núna Erla mín?
Ég: "já"
Hún: "er þetta búin að vera löng prófatörn?"
ég: "já eiginlega, síðasta prófið á morgun"
hún(hlæjandi): "já ég sé það bara á því hvernig þú lítur út!"
....ætli ég sé að sleppa mér aðeins of mikið í prófunum?
á maður í alvörunni að plokka augnabrúnir, setja á sig maskara og íhuga vel litasamsetningar og klæðaburð á meðan maður er að basla við að ná að lesa allt efnið fyrir hvert próf, hvað þá, god forbid, læra það almennilega?
nei, ég bara spyr....
JæjaErla Hlín Henrysdóttir
Þá er það komið, var að koma frá augnlækninum (gaf Slysó frí í þetta sinn) og það er e-ð að mér í öðru auganu.... lítur þó ekki út fyrir að ég þurfi að láta skera....allavega ekki strax :SNú er ég með jömmí krem sem fer í auga tvisvar á dag og gerir það að verkum að ég sé ekkert í klukkutíma eða svo... og er dofin, sem er reyndar glettilega skemmtileg tilfinning...
Ég var bara að spá, fyrst að gjörðir augnlæknisins áðan gefa yfirgnæfandi líkur á því að ég fái glóðarauga og Pablo er nýbúinn að sprengja á mér vörina.... er einhver til í að brjóta á mér nefið, bara svona til að taka package-deal?
Any takers?
