HelginErla Hlín Henrysdóttir
mín fór í prófalestur og áhorf á lélegustu mynd allra tíma (í alvöru) um risaeldgos í Yellowstone garðinum í USA á meðan ég fléttaði á mér hárið og borðaði ís (nammidagur skoh)Semsagt: mest spennandi helgi sem sögur fara af!
Ég var hins vegar að muna áðan þegar ég las blokkið hennar Öhnnu að ég fékk skemmtilega símhringingu á laugardagskvöldið... Hún var í rangt símanúmer og ég held barasta að hún hafi toppað það þegar ég fékk óvart sendar myndir af nýfæddum syni einhverra með ansi persónulegum upplýsingum...
Þetta var einhver strákur sem var BRJÁLAÐUR yfir því að ég væri ekki komin að hitta hann og að ég væri alltaf að ljúga að honum, ég væri langversta KÆRASTA í öllum heimi! Ég var náttúrulega bara hress og gat ekkert sagt nema að hann væri að hringja í vitlaust númer og þá fékk ég svarið HÆTTU AÐ LJÚGA AÐ MÉR ERLA!
long story short, mér var sagt upp símleiðis á laugardaginn og ég átti alls engann kærasta fyrir, ég held í alvöru að maður komist ekki neðar ;)
.... ég er pínu sár!
Ekki hætta með mér
Era :*
feink júErla Hlín Henrysdóttir
Þá er ég bara búin að skila inn Faunublaðinu mínu, þið sem kommentuðuð, tusind tak ;)þið hin; ég sendi bara Pablo á ykkur...
og þá meina ég ekki eitthvað spænskt kyntröll heldur hundinn hennar Áslaugar, ég var að setjast á rúmið hennar áðan og litla krúttið var svo spennt að hann sparkaði í mig og sprengdi vörina mína á tveimur stöðum, smart!
núna veit ég hverni hundsfótur er á bragðið, jömm...
annars er ekkert að frétta héðan, ekki þannig.... bið bara að heilsa
hugs'n kisses
Era
FaunaErla Hlín Henrysdóttir
jæja, þá er komið að því...nú á að fara að skila myndunum inn til teiknunar any day now, og þess vegna sný ég mér til þín kæri lesandi ;)
Það þarf að skila með fimm einkennum (hvernig á að teikna mann, klæðnað og annað) og líka bara e-ð svona einkennandi fyrir manneskjuna
(t.d. vil ég að það verði teiknuð hjá Áslaugu röð af slefandi strákum fyrir aftan bíði hér skilti...)
Endilega kommentið, því það er fáránlega sorglegt að vera með tóma mynd...
hvað er einkennandi fyrir mig? ha? Ha? HAA?
þögn varðar við vinslit ;)
.....nei djók
samt ekki...
stóra spurningin...Erla Hlín Henrysdóttir
Er maður orðinn fullorðinn?
Inga mín litla á svarið við því fyrir mig allavega, svo að ég þurfi ekkert að spá meira í þetta....
Inga: Erla þú ert ekki alveg orðin fullorðin...
Erla: núnú, af hverju ekki?
Inga: Af því þú ert ekki með barn í brjóstinu!
Hún er reyndar alltaf með einhver skemmtileg korn litla yndið (Faunu blaðsíðan hennar myndi fyllast á einum degi þessa dagana) áðan heyrðist tautað og svo, æh, æh, mér klæjar svo í öklinni!
Annars er ekkert að frétta af mér, nema, jújú komst að því áðan að pabbi á mjög góðan og vel virkandi heftara.... fattaði það þegar ég heftaði í puttann á mér...
...kannski á ég svolítið eftir í það að verða fullorðin ;)
