Að villa á sér heimildirErla Hlín Henrysdóttir
Leyfði hárinu að þorna afskiptalausu eftir íþróttir í dag og það fyrsta sem Jón mágur sagði þegar hann sá mig var; "nei! ertu nýbúin að fá þér permanent?"
....spurning hvort að ég er farin að nota þetta sléttujárn of mikið?
18.09.2006 kl. 03:30Erla Hlín Henrysdóttir
vinnuskýrsla:
orð í ritgerð:
615
orð í msn spjalli við Gogga:
eflaust í kringum 5000
ég er stolt, ekki spurning....
besti planari í heimi jafnvel...Erla Hlín Henrysdóttir
hvað á ég að vera að gera?- svara í vinnusímann (það er reyndar enginn að hringja, svo við getum strikað það út)
- raða pappírum
- lesa fyrir jarðfræðiprófið á morgun (important)
hvað er ég að gera?
- taka bloggrúnt
- blogga
- skoða myspace hjá öllum sem þekkja alla sem ég þekki
- lesa póstinn minn
- senda vinum mínum creepy sms á siminn.is
- skoða victoriassecret.com
hvað er planið þegar ég kem heim?
- horfa á America's Next Top Model
- horfa á Rockstar Supernova
- fara að sofa
-- mér finnst klárlega að ég ætti að fá einhvers konar verðlaun fyrir ótrúlega skipulagshæfni og vá hvað ég er viss um að ég eigi eftir að fá 10 á jarðfræðiprófinu!
jæja, back to doing nothing...
Era :D
gáfuleg heimskuleg kaupErla Hlín Henrysdóttir
Ég var í gati í dag fyrir hádegi með Áslaugu og við skelltum okkur í Pennann í Austurstræti, ég ætlaði að kaupa mér heimavinnubók svona þar sem Morkinskinnan er ekki aaaalveg komin....Eins og við eigum til misstum við okkur í einhverri vitleysu og vorum að skoða asnaleg strokleður og velja okkur límmiða þegar mér fannst við hæfi að kaupa mér tréliti (ég á svona 50 heima...)
E: "ætti ég að kaupa mér liti"
Á: "jámaður"
E: "er það bara svo þú getir fengið þá lánaða?"
Á: "nei, þú þarft að eiga liti (?)"
E: "ókei"
þegar konan renndi blessuðum trélitunum í gegnum kassann kom í ljós að mínum pakka fylgdi eitt stykki fjallahjól
ég var að sækja það, það er ekkert mega... en samt, núna á ég tvö ný sem eins og allir vita er NAUÐSYN ;)
þannig að þegar þið voruð ennþá að vakna greyin mín var ég þegar búin að græða hjól....
-já, líf mitt er óendanlega spennandi ;)
