gáfuleg heimskuleg kaupErla Hlín Henrysdóttir

Ég var í gati í dag fyrir hádegi með Áslaugu og við skelltum okkur í Pennann í Austurstræti, ég ætlaði að kaupa mér heimavinnubók svona þar sem Morkinskinnan er ekki aaaalveg komin....

Eins og við eigum til misstum við okkur í einhverri vitleysu og vorum að skoða asnaleg strokleður og velja okkur límmiða þegar mér fannst við hæfi að kaupa mér tréliti (ég á svona 50 heima...)

E: "ætti ég að kaupa mér liti"
Á: "jámaður"
E: "er það bara svo þú getir fengið þá lánaða?"
Á: "nei, þú þarft að eiga liti (?)"
E: "ókei"

þegar konan renndi blessuðum trélitunum í gegnum kassann kom í ljós að mínum pakka fylgdi eitt stykki fjallahjól
ég var að sækja það, það er ekkert mega... en samt, núna á ég tvö ný sem eins  og allir vita er NAUÐSYN ;)

þannig að þegar þið voruð ennþá að vakna greyin mín var ég þegar búin að græða hjól....

-já, líf mitt er óendanlega spennandi ;)

já...Erla Hlín Henrysdóttir

... það fer ekkert á milli mála að ég er komin heim aftur...

var búin að vera vakandi í klukkutíma þegar mamma hringdi og bað mig um að þvo bílinn sinn!

-fkn love being back ;)

Oooouuuch!Erla Hlín Henrysdóttir

brennd maður!

ég held að ég sé ekkert að fara í sólbað á morgun!

Oooouuuch!Erla Hlín Henrysdóttir

brennd maður!

ég held að ég sé ekkert að fara í sólbað á morgun!

úr heimspeki tóga:Erla Hlín Henrysdóttir

 leitið og þér munuð finna.... sængurver!

-komst að þessum leiða misskilningi núna, korter yfir tíu, daginn áður en ég fer út...

óóójáááErla Hlín Henrysdóttir

Nú er ekki hægt að segja að ég tali lítið um þessi blessuðu systrabörn mín... en ég verð að segja pínu frá Kolbeini litla...

Hann er algjör púki (og alltaf þegar ég segi honum það segir hann alvarlegur á svip, já, ég heiti púki) og gerir bara nákvæmlega það sem hann langar, skammir eru bara seinni tíma vandamál, en, uppáhaldið mitt er hvernig hann talar (getur ekki sagt r og eins og öll önnur kríli á einhver algjörlega júník orð) ég var til dæmis mjög lengi að átta mig á því í morgun hvað hann átti við þegar hann vakti mig blíðlega og sagði; "mi langað kókosbedd" hann var að sjálfsögðu og augljóslega að meina kókópöffs og ég er búin að vera að véla hann til að segja það í allan dag þetta er e-ð svo hryllilega sætt....

Annars er allt gott að frétta af mér, var í brúðkaupi í gær og var í þessum líka fína, gríðarlega aðsniðna kjól vegna þess að í kirkjunni hnerraði ég og hann renndist niður að aftan... uppskar að sjálfsögðu hlátrasköll og Ásta var ekkert alltof fljót að renna honum upp aftur ;)
-það er líka svo skemmtilegt (" ")  með Hallgrímskirkju að þegar maður gerir hluti eins og hnerra þá heyra það ALLIR, því það glymur svo, og líta við!

annars ekkert meira... endilega látið mig nú sjá í kommentum hverjir líta hér við, annars fer ég að gráta (sem er btw ekki nothæft trikk á Kolbein, hann segir bara; jájá, faððað gðáta!)

Í minni vinnu...Erla Hlín Henrysdóttir

...er rosalega gaman, en í minni vinnu er líka:

- meira en nóg að gera
- mjööög óheppilegt að slá inn eina vitlausa tölu
- alltaf miður skemmtileg lykt
- mikið af sætum unglæknum (einhverjir allavega, virðast samt allir annað  hvort vera nýgiftir eða á leiðinni upp að altarinu um næstu helgi ;)
- ótrúlega mikið af blóði
- mikið af stressuðu og/eða áhyggjufullu fólki í símanum
- hægt að gera risastór óhentug mistök vegna pínulítils skiljanlegs misskilnings...


I love my job!


góða skemmtun í ykkar vinnum...


(og svona effúæ æ , eru allir búnir að kaupa sér lök fyrir ferðina eða?)

%!:*?%/&!°Erla Hlín Henrysdóttir

Vá hvað mig langar til að gefa út veiðileyfi á fólk sem sparkar í sætið manns í bíó, þetta getur algjörlega eyðilagt fínustu myndir fyrir manni.

Prófaði að biðja KONUNA tvisvar að reyna að sparka ekki (þetta var stöðugt, og nota bene dætur hennar sátu eins og myndastyttur sitthvoru megin, þetta var fullorðin kona) gekk ekki. Alla jafna er erfitt að pirra mig...(þó að sumir séu einstaklega lagnir við það ;) en ég varð að skipta um sæti til að missa ekki vitið! achhh!! 

Annars fílaði ég Stick It í tætlur!

(ef þér fannst Bring it On góð þá ertu sammála mér með þessa)

Úr sögusafni pabba:Erla Hlín Henrysdóttir

Einu sinni...

...var maður sem keypti sér jörð fyrir norðan. Á jörðinni var bódabýli, en sá böggull fylgdi skammrifi að þessi bóndabær hét Tittlingur. Fljótlega var bóndinn kominn með viðurnefnið Ólafur á Tittlingi og nema maður hafi brjálæðislega svartan húmor er það óþægilegt, svo að hann var fljótur að endurnefna bæinn, Hlíðarenda.

Það virtist ekki breyta miklu og áfram var maðurinn kallaður Ólafur á Tittlingi, þótt að hann byggi á Hlíðarenda. Eina ráðið, var honum sagt, var að láta yrkja vísu um sig og bæinn svo að Hlíðarendi festi sig endanlega í sessi. Hann leitaði til hagyrðings, sem sá sér leik á borði, og orti;

Akureyrar vífum vænum
verður margt að bittlingi
er þar ekur út úr bænum
hann Ólafur... á Hlíðarenda

þetta hafði augljóslega ekki þau áhrif sem Ólafur karlinn vonaðist eftir og fór þetta svo fyrir brjóstið á honum að hann endaði á því að selja jörðina og flytja burt. Að því tilefni skellti ljóðapúkinn sér í gerð annarrar vísu:

Mörg nú hefur meyjan grátið
mun svo verða enn um sinn
því Ólafur hefur eftir látið
öðrum manni... Hlíðarenda


- Til hvers er skáldskapur þegar sannleikurinn er svona miklu betri?

af hverju, af hverju...Erla Hlín Henrysdóttir

hringir síminn ekkert í 45 mínútur og svo skyndielga fara þeir báðir af stað á sama tíma?

ALLTAF!

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Erla Hlín Henrysdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Um mig: "born with an extra happy-chip"

Auglýsing

Leit

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...