Helgarmamma part 2Erla Hlín Henrysdóttir

Addý og Gummi skelltu sér á hótel Búðir fram á morgundag og einhver varð að passa dóttlurnar :)

hér er ég því búin að fara í sandkassa og er að horfa á Latabæ eftir óskum yngsta meðlimsins, stefni á að sofna fyrir 11!

Á leiðinni heim áðan var Anna afturí, að vanda, megadúlla....

Erla: "hver er sætust?"
Anna: "Anna" 
Erla: "hver er best?"
Anna: "Anna"
Erla: "hver er skemmtilegust?"
Anna: "Anna"

Erla: "en hvað er Inga?"
Anna: "hún er gult!"

Erla: "er hún gul?"
Anna: "jaaaaá, og rautt.... á litinn"

ég gæti mögulega þurft að kanna betur heilsufarsástand þeirrar eldri áður en lengra er haldið :)

Af hverju?Erla Hlín Henrysdóttir

Jæja...
þá var kominn tími á að fara eftir kúnstarinnar reglum og senda tölvupóst á lækninn sem fjarlægði fæðingarblettinn minn fyrr í mánuðinum og vita hvort það hefði ekki verið allt í lagi.

Þegar ég kláraði að skrifa honum og ætlaði að teygja mig í nafnspjaldið sem hafði legi á grúfu á borðinu mínu var það ekki þar.

Með einhverri meiriháttar aðferð hafði það dottið á gólfið fyrir utan borðið mitt þar sem ég fann það nokkru seinna og frekar margir ganga um (ég er á Hlöðunni)
þar lá það og sneri "upp"

Upplýsingarnar sem skælbrostu framan í heiminn voru eftirfarandi:

Nafnið mitt (fullt)
kennitalan mín
tíminn sem ég átti hjá lækninum
fullt nafn læknisins og sérgreinin hans:
Húð- og kynsjúkdómalæknir!

Núna skil ég loksins fórstigin á endanum á bekknum sem ég lá hálfnakin á í fyrstu heimsókninni minni þangað...

Tölvupóstinn fékk ég svo beint aftur í hausinn á mér þar sem hjúkkudúllan hafði skrifað vitlaust póstfang á spjaldið!
Ef þetta hefði ekki gengið svona fáránlega vel myndi ég þess vegna segja að afskipti mín af þessum lækni hefðu verið frekar mikið klúður í alla staði...

Í allt öðrum fréttum.
Maðurinn sem sat á móti mér rétt áðan er með Gryffindortrefil, með skjaldarmerki og öllu.
Hann lítur út fyrir að vera nokkuð eðlilegur að öðru leyti og vel yfir þrítugu...
það fannst mér fyndið :) 

SöngtextalögganErla Hlín Henrysdóttir

Ég hef alltaf haldið að ég væri svona frekar í betri kantinum í textaminni.
Hlegið óspart að Addý fyrir skemmtilega jólalagatexta og Sigrúnu fyrir algerlega uppskálduð orð í sínum ensku textum.

Ég þurfti samt að kyngja stoltinu aðeins þegar ég fór að syngja áðan....

kannast einhver við:

Humidity is rising 

Barometers getting low-ow 

According to all sources 

The streets the place to go 

 ?

Þetta myndu vera upphafslínur It's Raining Men með Weather Girls...
ekki:
The rhythm is rising
momma's getting low
calling to all sources.....

*vandró* ! 

afturfæturnirErla Hlín Henrysdóttir

Ég fór til læknis í gær
það var nú ekkert merkilegt, bara svona rútínutékk á fæðingarblett sem ég hef alveg farið í áður.

Mjög basic, kíkt á blettinn, taka mynd, jafnvel spyrja nokkurra spurninga...

sá sem ég fór til núna hins vegar er greinilega vandvirkur maður, svo vandvirkur að hann náði að koma mér á óvart.
það gerði hann svona:

"farðu bara úr fötunum og leggstu á þennan bekk"

mikið vildi ég að ég ætti ekki nærklæði með áletruninni: Grumpy but gorgeous! 

Á rangri hilluErla Hlín Henrysdóttir

Það slær mig alltaf jafn mikið ef fólk hegðar sér á þveröfugan hátt við það sem maður hefði búist við af því.
Það þarf ekkert alltaf að vera slæmt, stundum er gott að láta manni bregða aðeins...
Þessar fyrirfram ákveðnu væntingar eiga alveg sérstaklega við um starfsval starfsvali.
Ekki sækja um á leikskóla ef að börn fara óendalega mikið í taugarnar á þér, ekki setjast við stýri á strætó ef þér finnst umferðarmenning leiðinleg og hefur verið tekinn fyrir umferðarlagabrot oftar en einu sinni og í guðanna bænum ekki setjast á skólabekk og læra sálfræði ef þú hefur alltaf átt erfitt með að setja þig í spor annara og hjálpa þeim sem lenda í vanda.... 

Valið er þitt.

Það ber kannski vott um það að tónlist er mikið áhugamál hjá mér að ég varð voðalega pirruð út í útvarpsmann áðan.
Hann hefði alveg getað svarið sig inn í hópinn með afgangi starfsfólks á fm 957 með því að klæmast óendanleg á orðatiltæki eða detta í hverja einustu málfarsgryfju "known to mankind" en nei, hann ákvað að fara nýja og áður óþekkta leið, sökkva á enn lægra plan í mínum bókum og sannfæra mig algerlega um að hann langar sko EKKERT að vinna við það sem hann gerir, með 8 orðum....

"Hverjum er ekki sama, þetta er bara tónlist." 

RORErla Hlín Henrysdóttir

ég er að passa fyrir Addý og Gumma.
Þegar ég kom var Anna Dagbjört sofnuð en Inga var svo sannarlega í essinu sínu....
Grinibjörg Guðmundsdóttir lá undir sófaborði tístandi og þegar hún kom undan því var hún með trúðsnef.
Síðan þá er hún búin að vera að giska í kapp við fólkið í Útsvari, dansa með auglýsingalögunum og borða popp eins og morgunkorn, í skál með mjólk (ég veit...)

Næst á dagskrá var Bachelorinn og hugrenningar Ingu hættu ekkert....
"af hverju eru þessar stelpur alltaf að grenja?" 
"bíddu, fóru BÁÐAR heim? hverri ætlar hann þá að giftast?"
Erla: "jah, hann vill bara ekki gifta sig..."
Inga: "ókei, en kannski gleymir hann því einhvern tímann og giftir sig þá...." 
Inga: "EÐA, ég veit! ef hann tekur allar stelpurnar sem eru skotnar í honum og hann er líka skotinn í og svo giftist hann bara þessari elstu... er það góð lausn?"

hugsið ykkur ef lífið væri svona einfalt og ljúft :)
 ég get alls ekki beðið eftir hugrenningunum um kvöldlesturinn...

ohh verð að þjóta, ég virðist vera eini óvirki keppandinn í grettukeppni.... 

Af því að blogg er of mikil fyrirhöfn...Erla Hlín Henrysdóttir

ROR

Ég hló svo mikið að það var vandræðalegt :)

FramhaldiðErla Hlín Henrysdóttir

Ég er algerlega tóm

Ekki bara blogglega séð heldur bara yfir höfuð.
Það hefur skyndilega komið e-ð slen yfir mig sem ég á erfitt með að hrista af mér, en ég get, vil, skal, ÆTLA! að gera það því að það er sko nóg af verkefnum framundan...

Ég var búin að gleyma því sem ég ætlaði að gera svo vandræðalega oft á síðasta ári (Sandra, ég er ekki ennþá búin að jafna mig á því að mæta bara ekki í matarboðið...) að ég er komin með stórt dagatal upp á vegg og annað aaaaagalega huggulegt í veskið sem Blóðbankinn var svo nice að gefa mér þegar ég heimsótti þá síðar...
það kostaði blóð, tiltölulega lítinn svita og engin tár.

nú er það bara að rífa sig upp á rassgatinu (sem er ógeðslegt orðatiltæki) og fara að læra því að sjúkra- og upptökuprófatörnin er um næstu helgi.
sem er einmitt sama helgi og kórinn minn fer í æfingabúðir oooooog Heilbrigðisdeildin eins og hún leggur sig fer í skíðaferð á Akureyri...

Well, ekkert af þessu er óyfirstíganlegt...
ég hef það samt á tilfinningunni að þetta væri allt saman mun auðveldara ef mér finndist vekjaraklukkan ekki vera að móðga mig persónulega á hverjum morgni þegar hún byrjar að skrækja! 

?Erla Hlín Henrysdóttir

það er alltaf jafn fyndið finnst mér þegar ég opna myndasögu og þar er e-ð prentað sem ég hef hugsað/gert...

xkcd 

 ....það er líka hægt að hugsa 'get out of my head' 
virkar eins ef einhver í strætó er mjög fær í hugsanalestri...

haha það er meiriháttar að vera bilaður! 

It's the most wonderful time of the year....Erla Hlín Henrysdóttir

Ahhh þá eru jólin komin aftur
með öllum sínum sprengframkvæmdum og svefnleysi...
Þessi hátið inniheldur 3 hluti sem eru mjög ofarlega á topp 10 hjá mér; mat, fjölskyldu og söng (ekki endilega í þessari röð), og ekki bara hvaða söng sem er, nei, krúttleg cheesy lög sem allir verða eiginlega að taka þátt í...

vá hvað ég elska þessa árstíð!

Ég hef ákveðið að fara alla leið og titla mig annað mesta jólabarn allra tíma :)
(ég ætla ekki að gerast svo gróf að titla mig ofar en Jesúbarnið... það er kannski einum of)

Ég elska hana svo mikið að ég kvartaði ekkert yfir vinnuskiptingu heimilisins í dag...

mamma: bakaði
Erla: þreif allt húsið... hvern krók og kima, ekki plat!
pabbi: heimsótti vini og kunningja

Við getum orðað það svo að eftir daginn er ég búin að u.þ.b. 2% þeirra þrifa sem ég "missi af" yfir árið... og það hallar alltaf á mömmu, ég er ekki ánægð með það, en það er því miður bara þannig...það er einmitt eitt af örfáum áramótaheitum hjá mér að breyta því. 

Þegar ég var búin með húsið tók herbergið mitt við, svona þar sem það telst ekki sem partur af húsinu einhverra hluta vegna...
og loksins loksins gat ég skreytt, ég er sko búin að bíða eftir því lengi.

Þegar ég var búin að skreyta og ánægð með verkið afskreytti ég aðeins því að það var eins og jólin hefðu dottið íða og gubbað yfir herbergið mitt, það er aldrei fallegt... ég sver það ég á jólaskraut á við meðalfjölskyldu...

En morgundagurinn bíður, fullt að gera svo að ég ætla bara að fara að sofa og slá botninn í eitt stykki bloggfærslu um nákvæmlega ekki neitt!

Gleðileg jól :* 

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Erla Hlín Henrysdóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Um mig: "born with an extra happy-chip"

Auglýsing

Leit

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...